Sóley
Myndasíða
01.05.2007 21:35:26 / soley

Er búin að færa mig

 

http://soleyv.blog.is/blog/soleyv/ 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 00:13:48 / soley

je dúda mía

Það er nú orðið langt síðan ég hef kíkt hér inn og margt búið að gerast síðan þá. T.d. er búið að ferma Valdimar og gekk það líka svona ljómandi vel. Nú er ég í henni Reykjavík og sit hér hjá Óðni bróðir og er að reyna að læra eitthvað í hausinn á mér því að það hefur nú eitthvað lítið farið fyrir lærdóm þessa önnina og stefni ég á að klára hana á hálfum mánuði en það er sá tími sem ég hef núna til að skila af mér lokaverkefninu í þessu fagi. Ég ætla ekki að segja ykkur hvað það á að vera langt og ekki að segja ykkur hvað ég er komin langt. Ég kann að skammast mín. Ok, þá er best að halda aðeins áfram áður en ég fer í draumalandið.

Kveðja Sóley 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 22:37:25 / soley

lýsandi, geinandi og ályktandi???????

Ég hef nú komið inn á það áður að ég sé ekkert viss um að svona blogg sé eitthvað fyrir mig en allavega hef ég ekki lokað því enn svo að líklega finnst mér bara ágætt að pústa hér af og til. Það er líka svo ansi heppilegt að hingað eru margir hættir að kíkja inn svo að ég fæ að eiga síðasta (og reyndar eina) orðið.
Það var frekar ónotaleg tilfinning sem greip mig í dag þegar ég tók mig loksins saman í andlitinu og fór að reyna að læra. Reyndar hefur þessi tilfinning gripið mig annað slagið síðan ég byrjaði í náminu en hún er sú að ég sé hreinlega ekki nógu þroskuð til að vera í þessu námi. Stundum líða heilu fyrirlestrarnir og ég hreinlega skil hvorki upp né niður í því sem talað var um eða hvað þá að ég hafi einhverja skoðun á því.
Í dag var ég að lesa mat kennarans á ritgerð sem ég skilaði á síðustu önn og þá hvolfdist þessi tilfinning yfir mig enn einu sinni. Ég fékk reyndar ekkert svakalega útreið en orðin sem kennarinn notaði voru svo háfleyg að ég upplifði mig sem eitt ?
Þar kemur fram að orðalag mitt í ritgerðinni sé einkum lýsandi, frekar en greinandi og ályktandi????
Getur verið að fólk sem hefur verið lengi inn í háskólasamfélagi tali annað tungumál en við hin???? Nei ég bara spyr.
Kveð í bili ætla að fara að lesa eða gera eitthvað sem ég skil.


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 14:36:55 / soley

Aldur

er mjög afstætt hugtak og finnst mér ég persónulega alltaf hafa verið algjört stelputrippi. Unanfarið hefur þó verið sagt við mig nokkrir hlutir sem hefur fengið mig til að hugsa um aldur minn. Getur verið að hægt sé að sjá sig í speglinum miklu yngri en maður er, svona eins og fólk með átraskanir sér sig of feitt þegar það er ekkert nema skinn og bein? Maður spyr sig.
Þetta byrjaði með að ég fór á ball hér um daginn og fannst bara gaman en fannst samt á tímabili eins og ég væri í eldri kantinum þarna inni.  Og þegar ég var alveg hætt að þekkja lögin sem hljómsveitin spilaði en allir hinir sungu með ákvað ég bara að fara heim. Nokkrum dögum seinna hafði kunningjakona mín samband við mig og sagði mér að stelpan sín (17 ára) sem var á sama balli og ég hafði sagt við mömmu sína "ekki vissi ég að svona kerlingar færu á ball" (átti við mig).
Nú svo þegar ég fór á spítalann um daginn var tvívegis sagt við mig, á sama sólahringnum, þar sem þú ert nú komin á þennan aldur þá  bla bla bla. Hugs hugs hvað aldur!!!!! Sér fólkið ekki að ég er enn stelpa.
Jæja ekki allt búið enn. Því í gærmorgun fékk ég síðasta áfallið. Ég heyri að Karen Ósk er vöknuð og í þessu líka ljómandi góðu skapi. Ég kalla á hana og bið hana að koma til mín upp í rúm og gefa mér knús áður en hún fór í skólann. Þá segir hún "mér finnst nú svo leiðinlegt að koma inn í herbergið ykkar pabba á morgnanna. Það er svo vond lykt af ykku, svona úreld lykt, eða þú skilur svona lykt af því þið eruð komin úr tísku"???????  HALLÓ á hvaða lyfjum er krakkinn. Það er SKO engin vond lykt af mér og mínum manni. Og við erum sko ekki komin úr tísku. Það er eins gott að hún muni að bráðum koma blessuð jólin og þá getur fólk sem er komið úr tísku sko ekki gefið nema úr tísku eitthvað!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 17:15:57 / soley

Þetta er bara ekkert að virka

þó að við séum tvær með þessa síðu.
 Jæja þetta verður bara að hafa sinn gang eins og sumir segja.
Annars er það að frétta að við gerðumst abc foreldrar í gærkveldi og ætlum að styrkja unga snót á Filipseyjum. Hún er 4ra ára og býr hjá fátækum foreldrum sínum. Einnig gerðumst við heimsforeldrar líka í gærkvöldi eins og svo margir aðrir eftir að hafa horft á sjónvarpsþátturinn um Rauða  nefið. Þetta eru nú ekki miklir peningar fyrir okkur og er ég viss um að maður taki ekki einu sinni eftir þegar þessar upphæðir verða dregnar af  reikningnum mánaðarlega en þeir koma að miklum notum fyrir þá sem ekkert hafa. Því miður eru margar fjölskyldur hér á landi sem eru undir fátækramörkum. Ég velti því fyrir mér í gærkvöldi þegar ég horfði á myndirnar frá afríku, hvort Guð væri til? Ég skil ekki afhverju lífið þarf að vera svona ansi napurt fyrir marga.
Jæja kveð að sinni er að reyna að koma mér í gírinn með ritgerðarsmíð.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 21:51:58 / soley

Veikindi

Jæja ætli það sé ekki best að deila með ykkur ævintýrum síðustu daga. Ég átti að fljúga til Rvk sl. föstudag og fara í skólann á laugard. Það var nú ekkert af því vegna veðurs. Hvað gera bændur þá? Jú ég kom mér auðvitað til Rvk, reyndar ekki fyrr en á sunnudeginum og með sjúkraflugi. Þannig er mál með vexti að ég er búin að vera með verki í maganum (núna í tvær vikur) sem virtust ekkert lagast þrátt fyrir pensilín, þar sem grunur lék á að um væri að ræða þvagfærasýkingu. Svo á sunnudag gafst læknirinn upp á að bíða eftir bata og sendi mig með sjúkrabíl á Egilsst. þar beið mín svo sjúkraflugvél. Þegar til Rvk var komið fór næstum mestur tími hjá liðinu á kvennlækningadeildinni að skammast yfir þessum miklum látum yfir engu. En svo virðist að ég hafi ekki verið alvarlega veik og fór það eitthvað í taugarnar á þeim. Fór í smá aðgerð á mánudagsmorgun og þar sem tekin voru sýni úr leghálsinum. En mikið fannst mér framkoma þeirra á spítalanum leiðinleg. Það er nú bara þannig að við hér fyrir austan búum ekki yfir eins flottum græjum og þið þarna fyrir sunnan og ekki eru starfandi kvennsjúkdómalæknar hér. Ég er í rauninni mjög þakklát fyrir þau viðbrögð sem voru viðhöfð hér fyrir austan en það veit sá sem allt veit að ég hefið nú frekar kosið að sleppa þessu og þá sérstaklega kynnum mínum við sumt starfsfólk á kvennadeildinni. Þó að græjurnar vanti og kannski stundum lækna þá hefur fólk hér allavega manneskjulega framkomu og vil ég þakka fyrir það. Kveð að sinni það er sem sagt allt ok með mig.

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 00:41:52 / soley

Svefngalsi eða hvað

Ég veit ekki afhverju en ég er alltaf að breyta útliti síðunnar. Ég held þó að ég sé sátt núna og finnst þetta útlit gera textann á síðunni læsilegri.
Það var eitthvað ógurlega merkilegt sem ég ætlaði að tjá mig um núna en ég hreinlega man ekki hvað það var. Þegar ég var lítil (yngri) þá sagði mamma alltaf að ef þú mannst ekki það sem þú ætlar að segja þá er það ekkert merkilegt. Það er kannski eitthvað til í þessu en það fannst mér ekki á þessum árum.
Bráðum ætlum við fjölskyldan að fara eitthvert í sumarbústað yfir helgi og njóta þess að vera saman. Raggi hefur verið að spila hingað og þangað undanfarnar helgar og helgarnar farið í eitthvað allt annað en að njóta þess að vera FJÖLSKYLDA. Það verður örugglega bara gaman.
Valdimar verður fermdur 5. apríl svo það er eins gott að fara að taka til hendinni og klára að gera það sem við ætlum okkur hér í húsinu. Tíminn er svo hrikalega fljótur að líða. Það eru að koma jól. Ég er ekki alveg að ná því. Ég er næstum viss um að það sé alltaf verið að stytta árið og við eigum ekkert að taka eftir því. HHHaaallóó ég er búin að fatta þetta í guðana bænum hafið árið aftur 12 mán. UMMMM hver væri það annars sem myndi stjórna því???????
Nei það var rétt það sem mamma sagði, ef þú mannst ekki hlutinn þá var hann ekki merkilegur.
Ég er farin að sofa.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 21:54:40 / soley

Hugleiðing

Ætli að sé þannig að þegar maður hefur upplifað mikla sorg að þá komi alltaf ”ef„ tímabilið af og til? Ég held það. Allavega vona ég það, því annars er ég föst á einhverjum stað í sorginni sem ég kemst ekki af. Það var búið að segja mér að þegar frá líður verði alltaf lengra og lengra á milli erfiðu tímabilana og ég hef upplifað að það er rétt. Eins er ég farin að þekkja þegar þau eru bráðum að koma. Þetta er svona stigvaxandi vanlíðan og oft reiði sem svo springur út með misjöfnu millibili, sem vonandi verða alltaf lengra og lengra á milli. Ég hef fundið undanfarið að bráðum gerist eitthvað sem verður þess valdandi að ég gefst upp og tárin fá útrás. Og það gerðist í kvöld. Ég var að horfa á Kompás (skrítið hvað sá þáttur er oft síðasta kornið sem fyllir mælirinn) og umræðan var aðbúnaður Alzheimers sjúklinga. Það er eitthvað við hana Siv Friðleifsdóttir sem gerir það að verkum að skapið mitt fer á hinn versta veg þegar sú manneskja tjáir sig. Í kvöld fullyrti hún að úti á landsbyggðinni væri verið að þjónusta þá einstkalinga sem þjást af Alzheimer með mannsæmandi hætti. Samt kom það einnig fram í þættinum, frá fólki sem ég tel að viti betur að svo væri ekki. En hvað vita þau? Þetta voru bara aðstandendur og starfsfólk sem vinnur við þennan málaflokk. Auðvitað veit Siv þetta manna best. Og þetta er ekki í eina skiptið sem hún veit manna best. O.m.g hvað hún gerir mig reiða þessi kona.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 19:38:52 / soley

Hvað segir

þú Kristjana um þetta útlit? Þú breytir bara ef þú vilt, hehehehe.
Jú konukvöldið var fínt það vantaði bara þig Kristjana mín.

Allt vitlaust að gera hjá mér í skólanum og vinnunni. En það er skemmtilegast þegar maður hefur nóg að gera. Er að gera nýja heimasíðu fyrir leikskólann og svo á að byggja fyrir litlu krílin á leikskólanum grindverk úti á leikvelli. Efnið er komið og á laugardag mæti sjálfboðalliðateymi frá Alcoa og setur grindverkið upp. Ég bara veit ekkert hvort þessi hópur kann að gera grindverk því það veit sá sem allt veit að ég kann það ekki og er ekkert búin að spá í það. Það verður gaman að sjá útkomuna.

Nú er loksins búið að opna líkamsræktaraðstöðuna hér á Eskifirði og hef ég farið 2x og ætla miklu oftar.

Bless í bili

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 22:44:29 / soley

Á ferð og flugi

Ég hef nú aldeilis verið á faraldsfæti síðustu helgar og ekki er allt búið enn. Síðustu helgi og núna þessa helgi fór ég til Akureyrar á ráðstefnur. Um seinustu helgi var ráðstefna um stærðfræði fyrir börn 1-3ja ára. Ansi skemmtileg og fræðandi ráðstefna. Mörgum finnst örugglega skrítið að tala um stærðfræði fyrir svo ung börn en spurningin snýst um að skilgreina hugtakið stærðfræði, því í raun er stærðfræði í öllu umhverfinu og í flestu því sem við tökum okkur fyrir hendur, galdurinn er bara að fatta það.
Þessa helgi var svo ráðstefna þar sem saman komu kennarar allra skólastigana, leik-grunn- framhalds- og háskóla. Á einum fyrirlestrinum var talað um hversu margir framhaldsskólanemar virðast flosna úr námi og rætt um ástæður þess. Ástæðurnar eru örugglega margar og marvíslegar. Ein var að nemendunum finnst einfaldlega leiðinlegt í skólanum. Og það finnst mér mjög sorglegt en trúi að það geti verið ein af ástæðunum. Ég heyri krakka í fyrstu bekkjum grunnskóla tala um hvað það sé leiðinlegt í skólanum. Einn fyrirlesarinn í morgun talaði um að leikskólakennarar gætu jafnvel kennt kennurum hinna skólastigana eitthvað því það vita allir að “í leikskóla er gaman” en þá gleði virðist vanta í kennsluna í hinum skólastigunum. Mikið er ég nú stollt af því að vera leikskólakennari. :P





» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 01:00:29 / soley

Bíó

Ég verð nú bara að segja ykkur eitt. Ég var að koma heim úr bíó rétt í þessu og sá alveg hreint frábæra mynd. Þetta er íslenska myndin ,,Börn". Myndin er hreint út sagt alveg stórkostleg og ekki er það verra að hún gerist í stigaganginum þar sem ég bjó öll mín uppvaxtar ár, nefnilega Þórufelli 14. Ég hvet alla sem eiga leið í borgina að skella sér í bíó og sjá þessa mynd.

Jæja over and out, góða nótt.

Kv. Kristjana


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 13:36:22 / soley

Nýr tengill

Setti inn nýjan link hér til hliðar, Gunnar R. Jónsson. Rakst á þessa síðu inn á Fjarðarbyggðarsíðunni. Mjög skemmtilegur penni hér á ferð.

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 19:36:04 / soley

Góða kvöldið.

Auðvitað vaknaði ég kl. 6 og fór í ræktina. Var reyndar frekar svefnlítil þar sem mig dreymdi alla nóttina(að mér fannst) að ég svæfi yfir mig og var því alltaf að vakna af og til og ath. klukkuna.
Ég er búin að vera eitthvað meir undanfarna daga án þess þó að bera það utan á mér. Raggi sagði við mig um daginn, þegar ég var eitthvað svona leið, að ég væri búin að vera sormædd síðan Þröstur bróðir fór. Vonandi lærist mér smátt og smátt að lifa með sorginni en stundum finnst mér eins og ég sé pikkföst á sama stað. “Þetta lagast” það er hún mamma vön að segja. Hún hefur sagt þetta síðan ég man eftir mér. Það var víst einhver læknir í Vestmanneyjum sem sagði þetta við hana einhverntíman. Alltaf jafn krúttlegt.
Jæja ætla að segja þetta nóg í bili er að fara á foreldrafund.

 
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 22:06:21 / soley

Ræktin

Þá er stefnan sett á að vakna kl.6 og vera mætt í ræktina á Reyðarfjörð 6:30. Veit ekki alveg hvernig þetta á eftir að ganga en það kemur í ljós.
Haustþing leikskóla á Austurlandi var á föstudaginn og tókst það mjög vel. Um kvöldið var svo matur og smá djamm.
Á laugardaginn fór ég og krakkarnir á Reyðarfjörð og vorum viðstödd þegar íþróttahöllin var formlega tekin í notkun. Rosalega flott hús.
Nú tekur við venjuleg vinnuvika og svo á föstudaginn förum við Lóa Dögg til Akureyrar og ætlum að sitja námskeið þar á laugardaginn.

Jæja þá er best að fara að sofa svo maður vakni ferskur kl.6 8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 23:46:34 / soley

Í dag

á minn elskulegi sonur afmæli. Elsku Valdimar innilegar hamingjuóskir með 13. ára afmælið:P.

Annars er bara allt gott að frétta. Í kvöld komu hingað góðir gestir, fjölskylumeðlimir og vinir í tilefni afmælisins og áttum við saman ljúfa kvöldstund.

Heyrumst síðar


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan
Leitarbox